߱ʱʱ

30. janúar 2022

Spennandi sumarstörf - umsóknarfrestur til 15. mars

߱ʱʱ Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við Reyðarfjörð. Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum í kerskála, skautsmiðju og steypuskála Fjarðaáls.

Sumarstarfsmenn þurfa að geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan mánuð. Möguleiki er á áframhaldandi starfi.

Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.


Almennar hæfniskröfur

Sterk öryggisvitund og árvekni

Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni

Heiðarleiki og stundvísi

Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi


Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Frekari upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í  470 7700 eða á starf@alcoa.com. Hægt er að sækja um sumarstarf .

Áhugasamir eru hvattir til að sækja um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim öllum svarað.

Umsóknarfrestur er til og með þriðjudeginum 15. mars.