߱ʱʱ

é

߱ʱʱ hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að laga starfsemi sína að hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar þar sem stefnt er að því að ná jafnvægi milli umhverfis, efnahags og samfélagslegra þátta til lengri tíma litið. ߱ʱʱ Fjarðaál leggur þess vegna megináherslu á að vera virkur þátttakandi í að byggja upp sjálfbært samfélag á Austurlandi til lengri tíma litið.

Liður í þessari viðleitni er sú stefna ߱ʱʱ Fjarðaáls að einbeita sér að álframleiðslu, en bjóða ýmsa stoðþjónustu út til annarra fyrirtækja og gera þeim þannig kleift að byggja upp starfsemi á Austurlandi.

, sem ráðist var í í tengslum við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og Fjarðaáls, hefur vakið athygli víða um heim. Efnt var til víðtæks samráðs með hagsmunaaðilum til að ákveða hvaða þætti í umhverfi, efnahagslífi og samfélagi bæri að vakta til að fylgjast með áhrifum uppbyggingarinnar, jákvæðum sem neikvæðum.

Fjarðaál og samfélagssjóður ߱ʱʱ hafa stutt fjárhagslega ýmis mikilvæg málefni á Austurlandi. Sem dæmi um verkefni, sem styrkt hafa verið má nefna Fjarðabyggðarhöllina á Reyðarfirði, endurgerð Sómastaða, ýmsa menningartengda viðburði, íþrótta- og tómstundastarf ungmenna og margt fleira. Fjarðaál hvetur einnig starfsmenn sína til að taka þátt í sjálfboðaliðastarfi til hagsbóta fyrir samfélagið og styrkir verkefni þeirra í slíku starfi. Sjá dæmi um sjálfboðaliðaverkefni og dæmi um styrk frá éssjóði ߱ʱʱ í Bandaríkjunum.

ésskýrsla

Á hverju ári skilar ߱ʱʱ Fjarðaál inn grænu bókhaldi ásamt skýrslu til Umhverfisstofnunar. Árið 2017 varð sú breyting að grænu bókhaldi er ekki skilað einu og sér, heldur er það hluti af samfélagsskýrslu sem unnin er skv. viðmiðum GRI. er hægt að skoða nýjustu samfélagsskýrslu Fjarðaáls.

Ჹðáڰéٳپ

Ჹðáڰéٳپ hafa komið út á hverju hausti síðan árið 2008. Í þeim er að finna skemmtileg viðtöl, áhugavert efni um áliðnaðinn, fréttir af framleiðslu Fjarðaáls og margt fleira. Blaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á Mið-Austurlandi, allt frá Djúpavogi til Vopnafjarðar. é er hægt að skoða allar útkomnar Ჹðáڰéٳپ allt aftur til ársins 2008.